03.12.2011 17:47
Minningargrein um Rögnu Hermannsdóttur
Ragna Hermannsdóttir var fædd á Stóruvöllum í Bárðardal 29. mars 1924
Foreldrar: Hermann Pálsson f. 30. september 1895 á Stóruvöllum, dáin á Hlíðskógum 16. janúar 1951 og Hulda Jónsdóttir f. 2. desember 1902 á Mýri, dáni 25. maí 1989.
Foreldrar Hermanns: voru Pál Hermann Jónsson hreppstjóri á Stóruvöllum fæddur 13. október 1860 dáinn 10. maí 1955 og Sigríður Jónsdóttir fædd 23. júlí Baldursheimi í Mývatnssveit 1869, dáin 20. apríl 1948.
Foreldrar Huldu: Jón Karlsson fæddur 25. júní 1877, dó 13. apríl 1937 og
Aðalbjörg Jónsdóttir fædd 7. ágúst 1880 dó 13. október 1943
Þau bjuggu á Mýri frá 1903-1937 Ragna skrifar "þannig voru ættartengslin allflókin. Afasystir mín var langamma mín. Pabbi og mamma voru skyld, af öðrum og þriðja. Þá vorum við mamma þremenningar".
Fjölskyldan flutti á nýbýlið Hlíðskóga 9. júlí 1926 þá er Ragna á þriðja ári, hún man flutningana, henni leiddist í fyrstu að flytja úr fjölmenninu á Stóruvöllum.
Það var mikil breyting fyrir barn. Jón Karlsson afi, skrifar tengdaföður sínum í Kanada 18.október 1925 "Ragna er það einþykkasta barn sem við höfum kynnst" Sjálf segist Ragna hafa verið hrædd við önnur börn, alltaf eina barnið á bænum og gestkomur fátíðar.
Nýja húsið var steinsteypt og var eldhús í kjallara undir stofu, sem er 15,5 fermetrar.
Húsið var hlýtt, eldavél í kjallara og hitinn átti greiða leið upp í stofuna þar sem líka var viðarofn, svo var kýr í forstofunni þó ekki fyrsta árið, þá aðeins kvíga en 5 geitur áttu þau, og geitur voru uppáhalds dýr Rögnu, hún taldi þær svo vitrar, sem er rétt. Þær beittu sér í skóginum og hlýddu kalli, og komu heim sjálfviljugar til mjalta á kvöldin.
Á Hlíðskógum fæðist svo önnur stúlka 1932, Svanhildur en reyndar fæddist á Stóruvöllum 1925 stúlka er lifði aðeins 6 vikur, hún var með klofinn hrygg, varð þetta mikið áfall fyrir ungu hjónin, sérstaklega Huldu, má segja að af þeim orsökum leið svo langt þar til Svanhildur fæddist.
Hún var hraust barn og svo er húsið á Hlíðskógum stækkað 1934 og Ragna segir að "þá var okkur aldrei hlítt" viðbyggingin og stækkunin var svo köld, enda upphitunin ekki meiri en var áður í litla húsinu.
1937 fæðist svo drengur Jón Aðalsteinn. Ég man ekki eftir Rögnu systur minni heima, hún fer í Héraðsskólann á Laugum 15 ára gömul og eftir það er hún aðeins í heimsókn á Hlíðskógum, og það var mikil gleði alltaf er hún kom heim, henni fylgdi ævintýrablær, hún var í vist á Akureyri því ekki voru efni til að ljúka skólagöngu á Laugum þar til seinni heimsstyrjöldin skellur á, þá batnar efnahagurinn og Ragna lauk námi.
Svo 18 ár gömul fer hún í Garðyrkjuskólann í Hveragerði, og útskrifaðist þaðan, sem garðyrkjufræðingur. Þegar hún kom á Kambabrúnir í fyrsta skipti, þá ákvað hún, að hér vildi hún eiga heima, sem svo varð.
Svo skeði það að Ragna kemur heim með mannsefni, Hannes Arngrímsson fæddur á Ísafirði 1921. Gifting þeirra varð á gamlársdag 1944. Þau byggðu upp garðyrkjustöðina Garð Breiðamörk 8 í Hveragerði, framleiddu aðallega blóm.
Hannesi og Rögnu varð ekki barna auðið. Því tóku þau fyrst að sér Jóhönnu Óskarsdóttir þá á öðru ári, 1954 nokkrum árum seinna, Hrafn Ásgeirsson, þá um ársgamall og að nokkrum árum liðnum, þá bættist í fjölskylduna annar drengur tveggja ára Björn Jónsson
Börnin voru ekki ættleidd, því halda þau föðurnafni sínu.
Börn fósturbarna Rögnu eru níu, því má segja að Ragna er amma margra.
Ragna og Hannes ferðast mikið um Ísland og tóku myndir, þá fékk Ragna áhuga að læra ljósmyndun, gerðist nemandi við Amerískan bréfaskóla 1972-1974 Famous Photography School Bandaríkin og fór svo til BA og tók próf og fékk réttindi, en hér heima á Íslandi var próf hennar ekki viðurkennt, svo hún fékk aðeins staðbundin réttindi.
Ragna er aftur í Bandaríkjunum 1975 við Sun Valley Center of Art and Photography Sun Valley. Þaðan eru margar myndir, sem eru unnar með svokallaðri silkiprent aðferð og eru fallegar.
Alla tíð mun hafa blundað í Rögnu að auka og bæta við menntun sína enn meir, því hóf hún nám við Öldungadeild Hamrahlíðarskóla í Reykjavík og varð stúdent frá skólanum 1980 í hópi þeirra fyrstu þaðan.
Í fyrstu feðraðist Ragna með áætlunarbíl milli Hveragerðis og Reykjavíkur, að lokum flutti hún í litla íbúð á Lindargötunni, og þá hóf hún nám við Nýlistadeild Myndlista-og handíðaskóla Íslands og lauk námi þar 1983
Sjá ferilskrá Googel.is Ragna Hermannsdóttir listakona.
Æviferill Rögnu hefur haft óendanlega mikil áhrif á marga. Bryndís Schram var með þáttagerð á Stöð 2, þar gerði hún þátt, með og um Rögnu 1986. Gerð þessa þátta hafði máski meiri áhrif en fólk gerir sér grein fyrir.
Karlstarfsmenn Stöðvar tvö létu þau orð falla "að réttast væri að banna útsendingu þáttarins, konur muni yfirgefa menn sína og fara í skóla og læra eitthvað"
Ragna hafði mikil áhrif á Hlíðskógafjölskylduna, og máski komið okkur til að gera eitthvað og sumt óvenjulegt.
Nokkrar konur hafa látið þau orð falla að Ragna væri sín fyrirmynd og margra, það er rétt.
Ragna fór til Heimspekináms við Háskóla Íslands um 1991-8 var það endir á áratuga löngum námsferli.
Útskrifaðist þaðan, og lokaritgerð hennar hét því einfalda nafni Um heimskuna.
Að mínu mati er heimskan mesta böl Íslensku þjóðarinnar.
Segja má að með ljósmynduninni hafi listaferill Rögnu hafist er lýkur ekki fyrr en seint á árinu 2010 þá með krítarteikningum.
Ragna hafði áhyggjur af öllum verkum sínum hvað af því öllu yrði. Ljósmyndasafn hennar er nú varðveitt í Skjalasafni Árnesinga á Selfossi, en öðrum verkum fól hún Safnahúsinu á Húsavík til varðveislu, eru það um 500 verk, grafík tölvugrafík og bókverk. Tréristan er þó einna fyrirferðamestu verkin, en þau verk vann hún við Akademíuna í Amsterdam.
Þau hjón Ragna og Hannes slitu samvistum 1984 Útför Rögnu fár fram í kyrrþey frá Fossvogskapellu 2. desember.
Fyrirhuguð er minningarathöfn um hana í Bárðardal á sumri komanda- Jón Aðalsteinn Hermannsson
.